BBC greinir frá því að tugir manna réðust inn á lóð sendiráðs Svíþjóðar í höfuðbor Írak, Bagdad, eftir að Kóraninn var brenndur í mótmælaskyni í Svíþjóð í gær. Ljósmyndari á vegum AFP varð vitni að því að hópur fólks fór inn í sendiráðið en sneri út 15 mínútum síðar þegar öryggissveitir voru kallaðar út.
Bókabrennan, sem heimiluð var af lögreluyfirvöldum í Svíþjóð, hefur ýtt undir mikla reiði í mörgum Múslimaríkjum en hún átti sér stað fyrsta dag Eid al-Ahda sem eru ein mikilvægastu helgihöld Múslima.
Forseti Tyrklands lýsti því yfir að „Við munum að lokum kenna hinum hrokafullu Vesturlandabúum það að móðga Múslima er ekki hugsannafrelsi.“ Tyrkir eru í þeirri stöðu að geta meinað Svíþjóð aðgang að NATO, en Svíar sóttu um aðild eftir að Rússland gerði innrás í Úkraínu.
Forsætisráðherra Svíþjóðar sagði á blaðamannafundi eftir úrskurð dómstóla um réttmæti brennunnar að ,,Þetta er löglegt en óviðeigandi“ og bætti við „Ég trúi því að við búum a tímum þar sem við ættum að halda ró okkar og íhuga hvað er best fyrir Svíþjóð til langs tíma litið.“