Bandarískur dómari kærður fyrir líkamsárás.
Ótrúlegt atvik átti sér stað í körfuboltaleik milli tveggja menntaskólaliða í Bandaríkjunum seinustu helgi. Þjálfarinn Rob Alexander var ósáttur við dómara leiksins en það var maður að nafni Brandon Knapper sem sá um dómgæslu leiksins. Þegar mennirnir tveir voru að ræða saman kýlir dómarinn þjálfarann upp úr þurru. Þjálfarinn féll til jarðar og hélt dómarinn áfram að kýla hann á jörðinni. Leikurinn leystist upp við þetta. Flytja þurfa þjálfarann á sjúkrahús.
Dómarinn var í framhaldinu kærður og hefjast réttarhöld 3. nóvember.
Hægt er að sjá myndband af atvikinu hér.