Betur fór en áhorfðist þegar kviknaði í flugvél í lendingu í Las Vegas. Vélin sem var á vegum Frontier flugfélagsins var á leiðinni frá San Diego í Kaliforníu með 190 farþega. Þegar vélin var í aðflugi kviknaði í undirvagni hennar og fylltist flugstjórnarklefinn af reyk og tilkynntu flugstjórarnir í framhaldinu um að neyðarlendingu yrði að ræða.
Þegar flugvélin lenti sprungu svo hjólbarðar í lendingarbúnaði vélarinnar en myndband náðist af lendingunni sem var síðar birt á Twitter. Slökkviliðið var tilbúið til að taka á móti vélinni og náði að slökkva eldinn án teljandi vandræða. Farþegar og áhöfn sluppu án meiðsla og verður atvikið nú rannsakað af yfirvöldum til að komast að hvað gerðist.
Hægt er að sjá myndband af lendingunni hér fyrir neðan.
Frontier flight 1326 from KSAN-KLAS just caught fire on landing at KLAS.
I caught it on video as it landed pic.twitter.com/KGt1Asx3rv
— Tyler (@TylerHerrick) October 5, 2024