Karl III Bretlandskonungur er sagður ætla sér að koma á sáttum á milli sín og sonar síns, Harry Bretaprins.
Fjölmiðillinn Telegraph fullyrðir eftir heimildarmönnum sínum innan hirðarinnar að samband Karls og Harry hafi verið ansi erfitt á löngum köflum; þrátt fyrir það vilji faðirinn og konungurinn Karl III opna faðm sinn fyrir prinsinum og eiginkonu hans, leikkonunni Meghan Markle.
Hleypa þeim innan úr kuldanum í sjóðandi heitan og kærleiksríkan faðm konungsfjölskyldunnar bresku.
Einnig er fullyrt að Karl III muni bjóða hjónunum í krýningarveislu sína í maí á þessu ári, en í sjónvarpsviðtali á ITV nýverið sagði Harry að fjölskylda hans hefði ekki gert tilraun til að sættast:
„Ég myndi vilja fá föður minn aftur og ég myndi vilja frá bróður minn aftur,“ sagði Harry.