Rúmlega 90 manns hafa fundist látnir á búgarði í Kenía en leiðtogi kristilegs sértrúarsafnaðar er grunaður um að hafa hvatt fólk til þess að svelta sig til dauða til þess að hitta Jesú. Paul Mackenzie Nthenge, leiðtogi sértrúarsafnaðarins, er grunaður um að hafa lokkað fólk til sín, skipað þeim að svelta sig og grafið það á landi búgarðsins. Breski miðillinn The Guardian greindi frá málinu en í einni gröfinni fannst heil fjölskylda, foreldrar og þrjú börn þeirra. Rúmlega tvö hundruð manns er enn saknað.
Paul var handtekinn fyrr í mánuðinum en hefur hann áður verið handtekinn í tengslum við dauðsföll barna á svæðinu. Innanríkisráðherrann Kithure Kindiki sagði aðgerðina umfangsmikla en á sama tíma er verið að rannsaka annan sértrúarsöfnuð í landinu. Harmleikurinn hefur vakið hörð viðbrögð en að sögn Kindiki taldi hann mögulegt að það sem komið væri í ljós nú þegar væri aðeins toppurinn á ísjakanum.