Maður sem stundaði ólöglega námuvinnslu í Suður-Afríku lýsir óbærilegri reynslu eftir að lögreglan stöðvaði matarsendingar niður í námuna.
Tugir manna sátu og lágu saman í litlum hellum, sumir svo grunnir að þeir gátu ekki staðið upp. Loftið var blautt og stíflað og pirrandi hósti bergmálaði í lokuðu rýminu. Þannig hefst lýsing sex barna föðurs frá Suður Afríku en þar stundaði hann ólöglegan gullnámugröft þar til lögreglan stöðvaði matarsendingar til námumannanna, með skelfilegum afleiðingum.
Líkum vafið í efni og tvinna voru sett til hliðar í raðir í nágrenninu. Slæm lykt gegnsýrði allt, svo það var erfitt að greina hvaða lykt kom frá dauðum mönnum á móti óþvegnum líkömum eða rökum steini.
Hungrið óbærilegt
Námumennirnir voru grindhoraðir vegna matarskorts, þar sem lögreglan beitti sér gegn ólöglegri námuvinnslu þeirra og stöðvaði um tíma afhendingu matar niður í námurnar.
Venjulega borðuðu námuverkamennirnir kjöt, brauð og hafragraut eldaðan á tjaldeldavélum sem keyrð voru með própani, en allt þetta hafði klárast. Án námuvinnslu til að dreifa huganum, reyktu þeir sígarettur og marijúana um tíma, þar til það kláraðist einnig.
Lýsingin, frá námuverkamanni og úr farsímamyndböndum sem send voru upp á yfirborðið fyrr í þessum mánuði, varpar ljósi á hryllinginn sem hundruð manna urðu fyrir djúpt neðanjarðar í yfirgefinri námu í Suður-Afríku, eftir að lögreglan réðist í aðgerð og stöðvaði mat og vistir til að „svæla þá út“ vegna þess að þeir voru að grafa ólöglega eftir gulli. Myndböndin voru birt opinberlega af hópi sem fór fyrir námuverkamönnunum.
Námuverkamaður stígur fram
Lögreglan hóf loks björgunaraðgerð fyrr í mánuðinum, samkvæmt dómsúrskurði, og sagði að enginn hafi verið skilinn eftir neðanjarðar. Tugir líka voru dregin út og að minnsta kosti 87 voru látnir.
Námumaðurinn, sem ræddi við Associated Press undir nafnleynd af ótta við hefndaraðgerðir, sagðist hafa komið upp á yfirborðið á jóladag eftir að hafa farið inn í námuna í júlí, eytt mánuðum neðanjarðar þar sem hann upplifði mikið hungur og sá marga félaga sína deyja úr hungri og veikindum.
Hann er einn af næstum 2.000 ólöglegum námuverkamönnum sem hafa komið upp úr námunni nálægt bænum Stilfontein síðan í ágúst á síðasta ári þegar lögreglan réðist í aðgerðir gegn henni sem hluta af stærri aðgerð sem miðar að því að takast á við útbreidd ólögleg námuviðskipti. Viðskiptin höfðu meira en þrjár milljónir dollara af Suður-afríska hagkerfinu á síðasta ári, að sögn námuvinnsluráðherra landsins.
Þegar verst lét, sagði námumaðurinn, borðuðu þeir gróft salt, það eina sem eftir var til að stöðva hungrið.
„Mér leið eins og óheppnin elti mig því ég hafði aðeins verið neðanjarðar í tvær vikur þegar aðgerð lögreglunnar hófst. Það var þá sem allt fór að ganga illa, við hættum að fá mat og við misstum samband við umheiminn, það gæti bara þýtt að lögreglan hafi komið og líklega handtekið eða fælt fólkið sem var að senda okkur matinn,“ sagði hann.
Líkin byrja að hrannast upp
Námumaðurinn sagði að mánuðirnir sem fylgdu hafi verið skelfilegir.
„Í september voru hlutirnir orðnir mjög slæmir. Fólk fór að verða svangt, það fór að veikjast, sumir dóu. Líkin byrjuðu að hrannast upp. Það er ekkert verra en að sjá einhvern deyja og ekkert sem þú getur gert í því,“ sagði hann.
Námumaðurinn, sem er 40 ára gamall sex barna faðir, fór út úr námunni í desember í gegnum sérstakt op sem var með stálstiga. Það er afar erfitt yfirferðar og hann marði hendurnar illa á leiðinni út.
„Þegar við vorum að klifra út sáum við lík annarra stráka sem höfðu reynt að fara út á sama hátt. Sumir höfðu dottið niður, aðrir voru heilleg lík en það var líka fullt af beinum, nánast eins og beinagrindur. Það er ekki auðvelt að fara þar í gegn, margir dóu þegar þeir reyndu að gera það,“ sagði hann.
Fátæktin er ástæðan
En hvers vegna fara námumennirnir inn í þennan neðanjarðar hreinsunareld til að byrja með?
Ástæðan er aðallega peningar. Ólögleg námavinnsla er ein stærsta tekjulind fátækra heimila í bæjum sem eru nálægt sirka 6.100 ónotuðum námum víðsvegar um landið þar sem ólögleg námuvinnsla er mikil.
Námumaðurinn sagði að honum hafi verið sagt að hann gæti þénað um 5.300 dollara [745.763 krónur] fyrir að vinna í nokkrar vikur til mánuð í einni af dýpstu gullnámum landsins, þar sem engin opinber starfsemi er lengur. Það er gríðarleg upphæð í Suður-Afríku, sem býr yfir miklum ójöfnuði og eitt hæsta atvinnuleysi í heiminum.
Margir aðrir námuverkamenn koma í leit að vinnu frá nágrannalöndum eins og Mósambík, Simbabve, Lesótó, Malaví og Kongó og börn eru stundum fengin í verkið. Það voru 13 börn á meðal þeirra sem komu út úr Stilfontein-námunni á síðasta ári.
Mmastona Mbizana, bæjarbúi í Khumo, sagði í samtali við Associated Press að tveir synir hennar hafi tekið þátt í ólöglegri námuvinnslu vegna atvinnuleysis og fátæktar. Tuttugu og tveggja ára sonur hennar var handtekinn eftir að hafa komist út úr námunni í aðgerðum lögreglunnar í desember og er nú laus gegn tryggingu.
„Ég heyrði frá einhverjum í hverfinu að hann hefði farið neðanjarðar. Faðir hans dó í fyrra og hann var ekki einu sinni hér í jarðarförina því hann var neðanjarðar í marga mánuði. Þeir segjast vera að gera það vegna ástandsins hér heima, ástandið eru erfitt,“ sagði Mbizana.
Hinn sonur Mbizana, Lucky, var handtekinn í sömu námu þegar hann vann sem hlaupari á yfirborðinu og sendi mat og aðrar vistir niður til námumannanna. Lucky, sem gengur um á hækjum, segist hafa verið dæmdur fyrir aðild að hinni ólöglegu námuvinnslu.
„Upp úr þurru kom lögreglan og skaut gúmmíkúlum og táragasi. Táragasið blindaði mig og ég datt, fótbrotnaði og féll,“ sagði hann.
Lucky sagði að hann væri vanur að þéna 424 dali [74.267 krónur] á mánuði fyrir að lækka matvæli og aðra böggla niður í námuna daglega, þar á meðal niðursoðið grænmeti og fisk, brauð, hafragraut, kjöt, sígarettur og áfengi.
Ekki benda á mig
Aðgerðarsinnar kenna Suður-afrískum stjórnvöldum um manntjónið sem varð í Stilfontein og segja að yfirvöld hefðu átt að bregðast við fyrr. Hins vegar hefur ríkisstjórnin haldið því fram að þótt dauðsföllin hafi verið harmleikur, þá sé ólögleg námavinnsla glæpsamlegt athæfi sem er skaðlegt fyrir efnahag landsins.
Vitað er að ólögleg námavinnsla í Suður-Afríku veldur víðtækum vandamálum fyrir nærliggjandi samfélög, þar á meðal ofbeldisglæpi og eyðileggingu á innviðum samfélagsins. Meðlimir samfélagsins tala líka um að heyra skotbardaga milli keppinauta námuhópa.
„Fólkið sem verður að taka ábyrgð á dauðsföllum sem hafa átt sér stað hér eru þeir sem njóta góðs af ólöglegri námuvinnslu,“ sagði námuvinnsluráðherrann Gwede Mantashe í Stilfontein í þar síðustu viku.
Að sögn Senzo Mchunu, lögreglumálaráðherra Suður-Afríku, eru yfirvöld að rannsaka alla virðiskeðju ólöglegrar námuvinnslu, þar á meðal hverjir græði mest á henni.
„Hvert þessar vörur fara er viðfangsefni rannsóknar okkar,“ sagði Mchunu og bætti við að ólögleg námavinnsla væri að „ræna Suður-Afríku miklum peningum“.