Föstudagur 31. janúar, 2025
-1.2 C
Reykjavik

Marianne Faithfull lést í gær

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Mari­anne Fait­hfull lést London í gær, 78 ára að aldri. Hún fædd­ist árið 1946 í Hamp­stead. Mariannes starfaði sem leikkona og söngkona. Hún varð þekkt fyr­ir ábreiðu af laginu As Te­ars Go By sem vakti mikla at­hygli í Bretlandi árið 1964. Þekktasta hlutverk hennar var í kvik­mynd­inni The Girl On A Motorcycle árið 1968.

Hún var um tíma á árunum eftir 1960 kærasta Mick Jagger, söngvara Rolling Stones. Hún giftist þrisvar og skildi jafnoft. Fyrsti eiginmaður hennar var John Dunbar ​ ​(1965-1966)​. Næstur var Ben Brierly ​ ​(1979-1986)​. Þriðji eiginmaður hennar var Giorgio Della Terza ​ ​(1988-1991).

 

Lífshlaup hennar var sumpart erfitt. Hún ánetjaðist heróíni og varð um hríð heim­il­is­laus. Plat­an Broken English kom út árið 1979  og kom henni rækilega á kortið aftur.

Á löng­um ferli starfaði hún m.a. með Dav­id Bowie, Lou Reed, Damon Al­barn, Metallica sem og PJ Har­vey og Nick Cave.

- Auglýsing -

Marianne Fait­hfull glímdi við veik­indi í lífi sínu. Hún barðist við lotug­ræðgi, brjóstakrabba­ og lungnaþembu sem rakin var til reyk­inga hennar um ára­tuga­skeið. Þá fékk hún Covid árið 2020 og lá inni á spítala í þrjár víkur þar sem henni var vart hugað líf.

Hún lætur eftir sig einn son, Nicholas Dunbar.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -