Meghan Markle hefur verið hrósað fyrir yfirveguð viðbrögð eftir að syrgjandi neitaði að heilsa henni. Harry prins og Meghan Markle mættu til Windsor-kastala ásamt Kate Middleton og Vilhjálmi prins um helgina. Er það sjaldséð að hjónin tvö sjáist saman en sameinuðust þau á ný til að votta syrgjendum virðingu sína sem höfðu safnast saman fyrir utan fyrrum dvalarstað Elísabetar II drottningar á laugardag.
Svo virðist sem viðvera Meghan hafi ekki verið vinsæl hjá öllum þeim sem mættu ef marka má viðbrögð syrgjanda. Þá kemur fram á vef Mirror að sumir hefðu hunsað leikkonuna, enginn þó eins áberandi og ein kona sem neitað að taka í hönd hennar. Yfirveguð viðbrögð Meghan hafa vakið athygli en kippti hún sér lítið upp við kuldalega framkomu viðstaddra.