Fimmtudagur 30. janúar, 2025
-0.2 C
Reykjavik

Minnst 18 látin eftir árekstur herþyrlu og farþegaflugvélar í Washington – 49 saknað

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Minnst 18 eru látnir eftir að farþegaflugvél hrapaði ofan í Potomax-á nærri Reagan-flugvelli í Washington D.C., eftir árekstur við herþyrlu.

Slysið varð klukkan níu í gærkvöldi að staðartíma en að sögn yfirvalda rakst herþyrlan á farþegaþotuna. Samkvæmt flugfélaginu American Airlines voru 60 farþegar um borð og fjögra manna áhöfn. Í þyrlunni, af gerðinni Black Hawk, voru þrír bandarískir hermenn.

Samkvæmt RÚV héldu yfirvöld blaðamannafund í morgun en þar komu engar upplýsingar fram um slys á fólki eða hvort einhverjir hefðu fundist látnir. Tveir heimildarmenn NBC segja að á annan tug líka hafa fundist í ánni en björgunaraðilar vinna í kappi við tímann við að finna fólk á lífi í ánni.

Slökkviliðsstjóri í Washington D.C., John Donnelly, segir aðstæður til björgunarleitar erfiðar, það sé dimmt og fá ljós til að lýsa upp ánna. Sagði hann báta vera mætta að flaki flugvélarinnar en vissi ekki um hvort einhverjir hefðu lifað af.

„Við gerum ráð fyrir að halda aðgerðum áfram í einhverja daga.“

RÚV segir frá því að CBS-fréttastofan í Bandaríkjunum hafi eftir heimildarmanni innan lögreglunnar að minnsta kosti 18 lík hafi fundist í ánni og að enn hafi engir eftirlifendur fundist.

- Auglýsing -

Vegna flugslyssins hefur Reagan-flugvelli í Washington D.C. verið lokað og verður haldið lokuðum í dag en slysið hefur að sögn Icelandair ekki áhrif á flugáætlun þar sem flugfélagið notast við Dulles-flugvöll. Þá býst Play einnig við að áætlun flugfélagsins haldi, í ljósi þess að flugfélagið flýgur til Baltimore.

Bandarísk og rússnesk listskautarar í flugvélinni

Fram kemur í frétt RÚV að félagar í listskautaliði Bandaríkjanna hafi verið í flugvélinni, sem var að koma frá Wichita í Kansas-fylki. Var þar verið að halda landsmót og þjálfurnarbúðir fyrir listskautara en í yfirlýsingu frá Listskautafélagi Bandaríkjanna kemur fram að fjölmargir íþróttamenn, þjálfarar og fjölskyldumeðlimir hafi verið í flugvélinni.

- Auglýsing -

„Við erum niðurbrotin vegna þessa sorglega atburðar og hugsum til aðstandenda fórnarlambanna. Við höldum áfram að fylgjast með málinu,“ segir í yfirlýsingunni.

Þá segir rússneski fjölmiðillinn TASS að tveir rússneskir listskautarar og þjálfarar þeirra hafi einnig verið um borð.

 

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -