Ákæra hefur verið gefin á hendur móður sex ára barns sem skaut kennarann sinn í janúar síðastliðnum. Kennarinn Abigail Zwerner,25 ára, særðist alvarlega þegar einn nemandi hennar í Richneck-grunnskólanum skaut hana í bringu og hönd þar sem hún sat í kennslustofu. Abigail náði að koma öðrum börnum í skjól en dvaldi hún á sjúkrahúsi næstu tvær vikurnar þar sem hún gekkst undir fjórar aðgerðir.
Kviðdómur í Virginíu gaf út ákæru á hendur móður barnsins og verður hún meðal annars ákærð fyrir alvarlega vanrækslu barns auk brots á skotvopnalögum. Kennarinn hefur höfðað mál gegn skólayfirvöldum og krefst 40 milljón dala í miskabætur. Þá kemur fram að skólayfirvöld höfðu fengið tilkynningar um að barnið væri ofbeldisfullt og með byssu í skólanum áður en það skaut kennarann. Barnið glímir við andlega erfiðleika að sögn fjölskyldunnar en skólastjóra skólans var sagt upp störfum í kjölfar harmleiksins.