Ísrael birti í gær upptökur úr öryggismyndavélum sem hafa vakið mikla reiði og sorg. Ein upptakan sem um ræðir er frá 7.október, sem er dagurinn þegar Hamas hryðjuverkasamtökin réðist inn í Ísrael.
Á upptökunni sjást Hamasliðar elta uppi fólk sem hleypur undan þeim skelfingu lostið. Í lokin sést ung kona krjúpa niður fyrir framan Hamasliða sem heldur áfram að skjóta á fólk á hlaupum. Því næst beinir hann rifflinum að konunni og skýtur hana af stuttu færi. Myndbandið má sjá hér að neðan en við vörum við efninu.
Viewer discretion:
A young Israeli woman begs for her life. A moment later she is shot at point blank range.
New footage from October 7th shows Hamas terrorists executing Israelis who tried to escape from the Nova music festival.
This is a war between good and evil. pic.twitter.com/QPoBjTCDuT
— Israel ישראל 🇮🇱 (@Israel) November 20, 2023