Maður nokkur skolaði á sér bossann á þaki Burger King.
Kólumbískur maður var í vikunni tekinn upp á myndband að þvo sér í vatnstanki á þaki Burger King í Envigado í Kólumbíu. Þvotturinn átti sér stað að degi til og var maðurinn alnakinn. Burger King gaf út yfirlýsingu að vatnið á þakinu sé ekki notað í eldamennsku á staðnum en ákvaðu samt að loka staðnum tímabundið og finna út úr því hvernig maðurinn komst á þakið.
„Viðskiptavinir okkar geta treyst á að þetta var einangrað atvik, sem við sjáum mjög eftir, og þetta mun ekki hafa áhrif á gæði vara okkur þar sem vatnið var ekki notað við gerð matvæla.“
Ekki liggur fyrir hver maðurinn er eða af hverju hann ákvað að skella sér í bað á þaki Burger King.
Hægt er að sjá upptöku af atvikinu hér.