NBA meistarinn Lamar Odom hugsar vel um húðina.
Lamar Odom, fyrrverandi leikmaður Los Angeles Lakers, gekkst á dögunum undir eina vinsælustu fegrunaraðgerð sem boðið er upp á núna en hún felur í sér að örnálum er stungið í andlit viðkomandi og eru þær þaktar sæði úr löxum og á sæðið að fara undir húðina. Meðferðin kostar venjulega rúmar 400 þúsund krónur en hún á að hjálpa að halda húðinni frísk- og unglegri.
Odom er ekki eina fræga manneskjan sem notast við þessa meðferð en leikkonan Jennifer Aniston hefur sagt í viðtölum að hún sé svo gott sem háð þessu vegna þess að þetta virki svo vel.
Odom var á sínum tíma giftur Khloé Kardashian þegar hann var leikmaður í NBA deildinni en hann spilaði tæplega 1000 leiki í deildinni á 14 tímabilum og var lykilmaður í liði Lakers þegar liðið vann NBA tvo titla í röð frá 2008 til 2010.
Hægt er að sjá myndband af Odom í meðferðinni hér.