Körfuboltamaðurinn og vandræðagemsinn Draymond Green var í nótt rekinn af velli fyrir að slá andstæðing sinn í andlitið.
Það halda körfuboltamanninum Draymond Green engin bönd en hann var enn og aftur rekinn af velli fyrir fíflalega hegðun. Í þetta sinn sló hann Jusuf Nurkic, leikmann Phoenix Suns, í andlitið fyrir litlar sakir. Ef leikinn sagði Green að um óviljaverk hafi verið að ræða og baðst hann afsökunar á atvikinu. En horfi fólk á myndband af atvikinu þá verður að teljast nokkuð tæpt að um slys hafi verið að ræða. Green, sem spilar með Golden State Warriors, hefur átt góðu gengi að fagna á ferlinum en hann hefur um árabil verið talinn einn besti varnarmaður deildarinnar en undanfarin ár hefur vandræðahegðun hans aukist til muna.
Fyrr á tímabilinu tók hann Rudy Gobert, leikmann Utah Jazz, hálstaki og reyndi að kyrkja hann og í fyrra kýldi hann samherja sinn í andlitið af öllu afli á æfingu.
Búast má við að hann hljóti nokkra leikja bann fyrir atvikið í nótt en hægt er að sjá myndband af því hér fyrir neðan.