Skólayfirvöld í Suður-Kaliforníu verður gert að greiða þolanda kynferðisofbeldis tæpar 300 milljónir króna en var það kennari drengsins sem braut á honum. Kennarinn, Laura Whitehurst, var handtekin árið 2013 en var hún þunguð eftir annan nemanda þegar brotið átti sér stað. Nemandinn var aðeins 14 ára gamall og viðurkenndi Laura síðar að hafa stundað kynlíf með honum allt að fimmtán sinnum, bæði inn í kennslustofunni og á heimili hennar en brotin áttu sér stað árið 2007 og 2008.
Laura játaði einnig að hafa stundað kynlíf með þremur öðrum fyrrum nemendum. Laura var dæmd í sex mánaða fangelsi og fór hún á lista yfir kynferðisafbrotamenn árið 2014, sama ár og hún eignaðist barn með nemanda sínum.