Lögreglumaður skellti 16 ára stelpu í jörðina af miklu afli.
Óhugnanlegt atvik náðist á myndband af lögreglumanni í borginni Victorville í Kaliforníu. Lögreglumenn höfðu verið kallaðir á svæðið til stöðva slagsmál í menntaskóla. Myndbandið sýnir lögreglumann lyfta 16 ára stelpu hátt til lofts og skella henni niður í jörðina. Ljóst er að hún hefur misst meðvitund og blæddi úr höfði. Lögreglan segir að um slys hafi verið að ræða. Ekki liggur fyrir hversu alvarlega meiðsli stelpunnar eru og ekki er ljóst hvort að lögreglumaðurinn verði rannsakaður fyrir atvikið.
Hægt er að horfa á myndbandið skelfilega hér.