Lindsey Graham, lögfræðingur og einn æðsti öldungarþingmaður Bandaríkjanna setti inn Twitter færslu þar sem hann hvetur Rússa til að taka málin í sínar hendur, eina leiðin til að binda enda á innrás Rússa í Úkraínu væri að einhver tæki að sér að myrða Vladimir Putin, Rússlandsforseta
„Þeir einu sem geta lagað þetta er rússneska þjóðin. Auðvelt að segja það en erfiðara að framkvæma. Ef þið viljið ekki lifa í myrkri það sem eftir er ævi ykkar, einangruð frá restinni af heiminum og dæmd til fátæktar þá þurfið þið að taka til verks,“ segir Lindsey og bætir við, „Eina leiðin til að enda þetta er að einhver í Rússlandi taki hann út, þið væruð að gera landinu ykkar og heiminum öllum stóran greiða“