Lögreglan í Devon birti nýverið dramatískt myndefni þar sem ökumaður sést lenda í árekstri á eftir að glæfralega tilraun hans til að taka fram úr vöruflutningabíl mistókst.
Norman Chai frá Woking í Surrey, var dæmdur fyrir að valda alvarlegum árekstri í umferðinni þar sem fjórir slösuðust alvarlega. Maðurinn, sem er 66 ára gamall, var að taka fram úr vörubíl nálægt Rawridge í Devon áður en hann missti stjórn á bílnum á blautum veginum.
Upptökur úr myndavél vörubílsins náðu augnablikinu þegar ökumaðurinn rann yfir á gagnstæða akrein og lenti í árekstri við tvö ökutæki. Myndbandið sýnir Chai keyra framhjá vörubílnum og yfir á gagnstæða akrein áður en hann reyndi að koma sér aftur inn á veginn fyrir framan vörubílinn. Sleipur vegurinn varð hins vegar til þess að hinn 66 ára gamli missti stjórn á sér og hafnaði á bifreiðum sem komu úr gagnstæðri átt.
Myndbandið náði einnig hinum hryllilega árekstri, þar að allir þrír bílarnir stórskemmdust.
Chai hafði verið á ferð með eiginkonu sinni og tengdamóður til Cornwall þegar hann missti stjórn á bílnum í bleytu. Hið hryllilega slys, sem átti sér stað í nóvember 2022, olli mörgum alvarlegum meiðslum, þar á meðal Chai og farþegunum í bíl hans.
Hinn 66 ára gamli Chai kom fyrir dómi í Exeter Crown fyrr á þessu ári, þar sem hann hlaut tveggja ára skilorðsbundinn dóm fyrir að hafa valdið alvarlegum meiðslum með hættulegum akstri.
Hér má sjá myndskeiðið: