Sagan segir að William hafi alist upp í fátækri fjölskyldu þar sem víða var pottur brotinn. Hann var ekki hár í loftinu þegar hann steig sín fyrstu skref á glæpabrautinni. Einhverra hluta vegna þá kom hann aldrei í verð, því sem hann kom höndum yfir með óheiðarlegum hætti. Þýfi sínu safnaði hann og lá á eins og ormur á gulli. Það kom reyndar ekki í ljós fyrr en eftir að hann var handtekinn 13 ára fyrir að hafa skotvopn í fórum sínum. Þá fannst þýfið í ónotuðu skýli á þaki byggingar nærri heimili hans. Næstu ár var hann sendur í vist á tveimur ungmennaheimila á vegum rómversk-kaþólsku kirkjunnar.
William George Heirens fékk seinna viðurnefnið Varalitar-morðinginn. Hann var bandarískur raðmorðingi sem játaði á sig þrjú morð árið 1946. Viðurnefnið fékk hann vegna alræmdra skilaboða sem hann skrifaði með varalit á vettvangi ódæða sinna.
„Í guðanna bænum hafið hendur í hári mínu, áður en ég drep fleiri,“ voru í skilaboðin …
Lesa meira hér.