- Auglýsing -
Stórfurðulegt rán í Oakland
Glæpamenn frömdu ótrúlegt rán í Oakland í Bandaríkjunum á mánudaginn en til þess að brjóta sér leið inn í búð notuðu þeir litla gröfu. Starfsmaður búðarinnar rétt náði að forða sér frá því að fá gröfuna beint í andlitið. Auk þess var grafan notuð til að brjóta hraðbankann inn í búðinni. Þjófarnir bundu reipi í hraðbankann og var hinn endi reipisins áfastur jeppa, sem var síðan keyrt í burtu. Að sögn eiganda varð búðin fyrir skemmdum að verðmæti 10 milljónum króna.
Hægt er að sjá myndbandið hér.