Aðdáendur íþróttaliða eiga það til að rífast eins og flestir vita en einstaka sinnum breytast þessi rifildi í ofbeldi.
Slíkt átti sér stað á föstudaginn í seinustu viku þegar hafnaboltaliðin San Francisco Giants mættu San Diego Padres á Petco-leikvellinum í San Diego. Í miðjum leik liðanna náðist myndband af konu klædd í Padres-treyju að rífast við tvo menn sem voru klæddir treyjum San Francisco Giants.
Ekki liggur fyrir um hvað þau voru að rífast en konan löðrungaði annan manninn og er greinilega á svipbrigðum mannsins að hann átti ekki von á þessu. Þegar konan reynir svo að labba í burtu ýtir maðurinn sem hún sló í bak hennar.
Leikurinn sjálfur endaði 8-3 fyrir San Francisco Giants.
Hægt er að sjá myndband af atvikinu hér.