- Auglýsing -
Miðlar samfélagsmiðlarisans Meta liggja alveg niðri víða um heim.
Á Íslandi, sem og víða um heim, liggja samfélagsmiðlar Meta niðri, en engar upplýsingar hafa verið gefnar upp um ástæðu þess. Sjá má á síðunni downdetector.com, sem heldur utan um bilanir á síðum og smáforritum, að fleiri hundruð þúsund manns hefur tilkynnt um bilanir og má búast við að talan sé mun hærri. Um er að ræða miðla á borð við Facebook, Instagram og WhatsApp.
Fréttin verður uppfærð.