Enn standa yfir réttarhöld í máli Johnny Depp og Amber Heard en málið hefur vakið mikla athygli um allan heim. Réttarsálfræðingurinn, Dawn Hughes, sagði frá því í dómsal í gær að Amber þjáðist af áfallastreituröskun eftir hjónabandið. Þá sagði hún Amber ítrekað hafa orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi meðan á hjónabandinu stóð.
„Hann henti henni á rúmið, reif af henni náttkjólinn og reyndi að hafa mök við hana,“ sagði Hughes. „Það kom fyrir að hann þvingaði hana til þess að hafa við hann munnmök þegar hann var reiður – þetta voru ekki rómantískar stundir, þetta var gert í reiði,“ sagði hún og bætti við að Depp hafi einnig sett flösku inn í kynfæri Amber. Depp hefur þrætt fyrir að hafa beitt ofbeldi meðan á hjónabandinu stóð og segir hann Amber hafa beitt ofbeldi.