Aya, 30 ára palestínsk kona á flótta, sem dvelur í skjóli í Deir el-Balah, segist telja að óbreyttir palestínskir borgarar séu notaðir sem peð í stríðinu á meðan viðræður um vopnahlé dragast á langinn.
„Hljóð sprengjuárása hættu ekki alla nóttina,“ sagði Aya við Reuters fréttastofuna. „Í hvert skipti sem þeir tala um nýjar vopnahlésviðræður notar hernámsliðið einn bæ eða flóttamannabúðir sem þrýstipunkt,“ sagði hún.
Og hún hélt áfram: „Af hverju ættu óbreyttir borgarar, fólk öruggt inni á heimilum sínum eða tjöldum, að gjalda fyrir þetta? Af hverju geta arabar og heimurinn ekki stöðvað stríðið?“