Husam Zomlot, sendiherra Palestínu í Bretlandi var sýnilega þreyttur á BBC í viðtali á þeim miðli og talaði um áróður Ísraelsstjórnar.
Sendiherra Palestínu í Bretlandi, Husam Zomlot, var fenginn til að ræða við fréttamann BBC um ástandið á Gaza en á myndbandi sem fer eins og sina um samfélagsmiðlana, má sjá að hann er orðinn ansi þreyttur á BBC í umfjöllun sinni um stríðið á Gaza. „Þetta er stríð gegn palestínsku fólki og það stríð hefur staðið yfir í 75 ár Louis, þetta er ekkert nýtt,“ segir Zomlot í upphafi klippunnar. Fréttamaður BBC svarar: „Ísraelar segja í dag að Hamas-liðar noti fólk sem mennska skildi, gera þeir það?“
Þessu svaraði Zomlot á kostulegan hátt en byrjaði á andvarpi. „Veistu hvað. Drepa fórnarlömbin og kenna svo fórnarlömbunum um að hafa drepið sig sjálf, eins og að Hamas hafi sprengt spítalann, að Shireen Abu Akleh hafi verið drepin af Palestínumönnum, þú mannst, hún var þinn kollegi. Að kenna fórnarlömbunum um að drepa sig sjálf en ef það virkar ekki, þá segja þeir að fórnarlömbin noti börn sem mennska skildi. Ok, við skulum ímynda okkur að áróður Ísraela sé sannur. Ímyndaðu þér geðsjúkling í Lundúnum, sem fer tekur 10 börn í gíslingu á sjúkrahúsi. Bresk yfirvöld myndu svo sprengja sjúkrahúsið í tætlur. Í alvörunni Louis? Að bresk yfirvöld myndu sprengja Belfast og Dublin, ég meina, hvaða röksemdarfærsla er þetta eiginlega? Að palestínskir hópar taki sitt eigið fólk í gíslingu, þetta eru kynþáttafordómar, þetta er sjúkleiki. Þetta þarf að stoppa og á aldrei að vera endurtekið í ríkisfjölmiðli.“
Husam Zomlot is absolutely done with the BBC loool 😭😭
I felt that sigh at 00:14 in my bones!!! pic.twitter.com/3pBMEX8EDK
— Fatima (@fatimazsaid) October 29, 2023