Litlu mátti muna fyrir níu ára gamlan strák í Fort Worth í Texas þegar húsið hans varð fyrir skotárás fyrr í maí en alls var fjórum skotum skotið í hús stráksins. Slapp strákurinn alveg ómeiddur. Viðbrögð stráksins eru sögð hafa verið til fyrirmyndar en um leið og hann heyrði skothljóðin beygði hann sig niður í sófanum sem hann sat í og kom sér fljótt í skjól. Því miður sluppu sex önnur ungmenni ekki jafn vel og strákurinn en myndavél fyrir utan húsið náði skotárásinni á upptöku. Hægt er að horfa á upptökuna hér en við vörum við efni myndbandsins. „Ég er glaður að ég varð ekki fyrir skoti en mér líður illa vegna krakkanna sem voru skotinn,“ sagði níu ára strákurinn í samtali við fjölmiðla í Bandaríkjunum en ekkert ungmennanna er talið í lífshættu eftir skotárásina. Samkvæmt lögreglunni í Fort Worth keyrðu árásarmennirnir rauðum Kia Soul framhjá hópnum þegar þeir hófu skotárásina en ekki neinar handtökur hafa verið gerðar.