Alríkisdómari í Bandaríkjunum hefur úrskurðað að þrýstingur ríkisstjórnar Joe Biden á samfélagsmiðlafyrirtæki um að ritskoða efni sem tengdist aðgerðum stjórnvalda gegn Covid-19 og kosningum þar í landi stangist á við stjórnarskrá Bandaríkjanna.
Málið er umdeilt því það er talið vera leiðarvísir fyrir hlutverk þegar kemur að því að stjórna efni á samfélagsmiðlum.
Úrskurðurinn þykir ákveðinn sigur fyrir Repúblikana sem hafa ásakað stjórnvöld um ritskoðun á málfrelsi en Terry Doughty, dómari í Louisiana, birti 155 blaðsíðna úrskurð sinn í gær þar sem hann sakar stjórnvöld um Orwellianisma. Stjórnvöld halda því hins vegar fram að samfélagsmiðlar þurfi að bera ábyrgð þar sem efni þeirra hafi mikil áhrif á bandarísku þjóðina.
Dómarinn benti á tölvupóstsamskipti milli ríkisstjórnar bandaríkjanna og starfsfólk Google þar sem YouTube er sakað um upplýsingaóreiðu þegar kom að bóluefnum gegn Covid-19, en skv. úrskurðinum mun slíkt vera í góðu lagi.
Þetta kemur fram í grein vb.is.