Sjö ára drengur, Malakye Hall, lést eftir að móðir hans skildi hann eftir einan heima á meðan hún fór að hitta elskhuga sinn. Malakye var skilinn eftir á heimili sínu, sem var án rafmagns og hita, í ágúst árið 2020. Skömmu eftir að móðir hans hafði yfirgefið heimilið komst Malakye út úr húsinu. Stuttu síðar varð hann fyrir bíl sem leigubílstjórinn Mohsin Hussain ók undir áhrifum fíkniefna. Hann hefur nú verið dæmdur í tæplega tíu ára fangelsi.
Upptökur úr eftirlitsmyndavélum voru spilaðar við réttarhöldin á fimmtudaginn síðasta en þar sést Mohsin aka yfir hámarkshraða og fara yfir á rauðu ljósi. Drengurinn hlaut mikla höfuðáverka og var úrskurðaður látinn á sjúkrahúsi skömmu eftir komuna þangað. Refsing móðurinnar hefur ekki verið birt að svo stöddu.