Íbúar Vancouver í Kanada trúðu vart eigin augum á laugardaginn þegar þeir sáu sjóflugvél keyra á skemmtibát þegar flugvélin var að reyna hefja sig flugs. Atvikið ótrúlega náðist á myndband frá nokkrum sjónarhornum og er í raun mildi að ekki fór verr en tveir einstaklingar sem voru á skemmtibátnum þurftu að fara á sjúkrahús eftir áreksturinn. Atvikið sem gerðist rétt eftir hádegi á laugardaginn átti sér stað á umráðasvæði sjóflugvéla og rannsakar lögreglan í borginni góðu af hverju báturinn var á því svæði en flugvélin sökk í sjóinn eftir að hafa klesst á bátinn.