Bretar hefja rannsókn á jákvæðum áhrifum kannabisefna á einkenni þeirra sem glíma við langvarandi veikindi eftir Covid smit. í rannsókninni taka þátt 30 sjúklingar sem lifa við síþreytu, vöðvaverki, kvíða og svefnleysi, allt eru þetta ungir einstaklingar sem voru heilsuhraustir fyrir Covid smit.
Sjúklingum verður gefinn daglegur skammtur af kannabisolíu sem er 5% CBD og 0,2% THC, sem er virka efnið í kannabis og framkallar vímu. Rannsóknin fer fram á sex mánuðum, frá febrúar, fram í ágúst.
Kannabis í læknisfræðilegum tilgangi hefur verið löglegt í Bretlandi síðan 2019 en er sjaldan gefið af læknum þar sem rannsóknir eru ekki taldar nægar og neikvæð áhrif efnisins eru óumdeilanleg.