Eftir blaðamannafund með lögreglunni í Kaupmannahöfn greinir dr.dk frá að 17 ára drengur og stúlka og 47 ára gamall maður eru fórnalömb skotárásar gærdagsins, sem átti sér stað í verslunarmiðstöðinni Fields í Kaupamannahöfn.
Auk þeirra látnu voru fjögur önnur skotnin – og eru þau öll á spítala þar sem gert var að sárum þeirra og ástand þeirra alvarlegt.
Ekkert bendir til að um hryðjuverk sé að ræða. Laust fyrir klukkan sex í gærkveldi var 22 ára karlmaður handtekinn fyrir utan verslunarmiðstöðina. Lögreglan staðfesti að sá grunaði er þekktur innan geðheilbrigðskerfisins.