- Auglýsing -
Lögreglan í Guildford-sýslu gaf út yfirlýsingu í gær þar sem kom fram að lögreglumenn hefði brugðist við tilkynningu um læti í kringum 02:30 í Greensboro í Norður Carolinu í gær. Þegar þeir komu á vettvang segjast þeir hafa fundið fórnarlamb skotárásar, nafngreint sem Overton. Lögreglumenn veittu undir eins læknishjálp en hann var úrskurðaður látinn á vettvangi. Rannsakar lögreglan málið sem morð en enginn hefur enn verið handtekinn vegna málsins.