Matthew Miller, talsmaður bandaríska utanríkisráðuneytisins hló vandræðalega er blaðamaður skaut inn athugasemd á blaðamannafundi í gær.
Talsmaður utanríkisráðuneytis Bandaríkjanna, Matthew Miller, ræddi ástandið fyrir botni Miðjarðarhafs á blaðamannafundi í Hvíta húsinu í gær. Nokkuð vandræðalegt augnablik varð á fundinum þegar Miller ræddi um samskipti Bandaríkjanna og Ísraels. „Ísrael, líkt og önnur lönd á svæðinu, er fullvalda ríki, sem tekur sínar eigin ákvarðanir,“ sagði Miller og hélt áfram: „Bandaríkin stjórna ekki ákvörðunum Ísraels, rétt eins og við stjórnum ekki öðrum löndum.“
Blaðamaður á fundinum skellti þá inn setningu sem fékk Miller til að hlæja vandræðalega. „Nema við gerum innrás í landið,“ sagði blaðamaðurinn.
Við þetta hlóu nokkrir blaðamanenn og Miller gerði slíkt hið sama, nokkuð skömmustulega og sagði: „Góður þessi! Nei, en ég meina, kommon, já. Við erum með uppistand í kynningarherberginu.“
Hér má sjá atvikið sem vakið hefur athygli: