Samkvæmt nýlegum lista World Happiness Report kemur fram að Finnland er hamingjusamasta þjóð heims, sjötta árið í röð. Norrænu þjóðirnar Danmörk, Svíþjóð, Noregur og Ísland skora allar hátt í skýrslunni. Mælikvarðinn sem notaður er í skýrslunni eru eftirfarandi: heilbrigðar lífslíkur, félagslegur stuðningur, lítil spilling, örlæti í samfélaginu þar sem fólk sér um hvert annað og frelsi til þess að taka lykilákvarðanir í lífinu.
Meðal þeirra þjóða sem eru í efstu tíu sætunum eru Ísrael, Holland, Sviss, Lúxemborg og Nýja Sjáland. Ástralía er í tólfta sæti, Kanada þrettánda og Írland í því fjórtánda. Bandaríkin og Bretland voru einnig ofarlega á lista eða í fimmtánda og nítjánda sæti. Skýrsluna má lesa í heild sinni hér.