Þjófar beita of ýmsum brögðum við iðju sína og fékk Omar Gabriel Munoz heldur betur að kynnast því en hann býr í Sacramento í Kaliforníu í Bandaríkjunum. Munoz átti von á pakka en þegar hann kom ekki fór hann að athuga upptökur á öryggismyndavél sem er fyrir utan heimili hans. Þá kom í ljós að þjófur dulbjó sig sem ruslapoki og labbaði hægt og rólega upp að pakkanum sem lá fyrir utan heimili Munoz. „Fyrst var ég reiður af því að ég átti von á þessum pakka en í sannleika sagt þá var þetta svolítið fyndið,“ sagði Munoz við ABC 10 fréttastofuna en hann sagði ekkert merkilegt eða dýrt hafi verið í pakkanum. Hægt er að horfa á myndband af þessu ótrúlega atviki hér.