Rökræður um ágæti ananas á pítsum hafa á undanförnum áratug verið eitt af aðalumræðuefnum matreiðsluheiminum en pítsustaður í Norwich í Bretlandi hefur tekið mjög óvenjulega afstöðu í máli. Pítsustaðurinn, sem heitir Lupa pizza, hefur ákveðið að bjóða upp á möguleikann að panta flatböku með ananas áleggi en kostar sú pítsa rúmar 17 þúsund krónur. „Ég algjörlega fyrirlít ananas á pítsu,“ sagði Francis Wolf, meðeigandi Lupa pizza, í viðtali við The Guardian um viðbótina á matseðlinum. Undir það tekur Quin Jianoran, yfirkokkur staðarins. „Ég elska Piña colada en ananas á pítsu? Aldrei. Ég myndi frekar setja helvítis jarðarber á pítsu en þetta hitabeltiskjaftæði,“ lét hann hafa eftir sér. Samkvæmt könnun sem gerð var í Bretlandi árið 2017 þykja 84% Breta pítsur góðar og 82% segja sama um ananas. Hins vegar sögðu aðeins 53% að þetta tvennt ætti vel saman. Frægt er þegar Guðni Th. Jóhannesson, fyrrverandi forseti Íslands, sagði árið 2017 í við nemendur í Menntaskólanum á Akureyri að ef hann hefði vald til þess að banna að fólk setti ananas á pítsur þá myndi hann gera það.