Whoopi Goldberg braut eina aðalregluna í nútíma samskiptum
Sjónvarps- og leikkonan Whoopi Goldberg hefur á undanförnum árum verið hluti af spjallþættinum The View en þátturinn hefur í gegnum tíðina verið skipaður af fimm konum sem fá gesti til sín og ræða málefni líðandi stundar. Upp úr þurru spurði Whoopi hana Alyssa Griffin, sem er meðstjórnandi The View, hvort hún væri ólétt. Alyssa neitaði því um leið og þetta varð greinilega mjög vandræðalegt fyrir alla stjórnendur en það þykir ekki í lagi að spyrja konur hvort þær séu óléttar.Whoopi Goldberg ætti svo sannarlega að vita það.
Hægt er að sjá myndband af atvikinu hér