Kurt Zouma, leikmaður West Ham í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu var í dag dæmdur fyrir tvö brot á lögum um velferð dýra.
Nýverið var greint frá því þegar Zouma mætti fyrir dóm vegna brotanna, en myndbönd af honum höfðu farið í dreifingu um netið þar sem hann sést beita kettina sína grófu ofbeldi. Hann sést til að mynda slá til kattar síns, sparka í hann og tala um að drepa hann. Það var bróðir Zouma sem tók myndböndin upp og sendi áfram á Snapchat, en bræðrunum virðist hafa þótt ofbeldið skemmtiefni fyrir sig og aðra.
Eftir að myndböndin fóru í dreifingu stigu dýraverndarsamtök inn í málið og fjarlægðu kettina tvo af heimilinu.
Zouma var líkt og fyrr segir dæmdur sekur fyrir tvö brot gegn lögum um velferð dýra í dag og gert að verja 180 klukkustundum í samfélagsþjónustu fyrir hvort brot; 360 klukkustundum alls. Úskurður dómara bannar honum einnig að eiga kött næstu fimm árin, eða fram til ársins 2027.
Auk þess að hafa leikið með hinum ýmsu úrvalsdeildarliðum í knattspyrnu á Zouma einnig að baki 11 A-landsliðsleiki með Frakklandi.