„Heilbrigðisyfirvöld birta mjög gagnlegar upplýsingar um hvernig hægt er að forðast smit sem allir ættu að fylgja, en á sama tíma getum við einnig gert ýmislegt sjálf til að styrkja ónæmiskerfið okkar og byggja þannig upp getu líkamans til að takast á við smitsjúkdóma almennt,“ skrifar einkaþjálfarinn Björn Þór Sigurbjörnsson í sinn nýjasta pistil. Hann segir að nú sé sérstaklega mikilvægt að hugsa um heilsuna í ljósi útbreiðslu COVID-19.
Hann skrifar um að ónæmiskerfið okkar sé margbrotið og segir ýmsa þætti geta styrkt það og sömuleiðis veikt. „Lífsstíll okkar hefur einnig mikil áhrif á getu kerfisins til að vinna rétt og óhollt matarræði eða lítil hreyfing getur auðveldlega gert líkamanum erfiðara að verjast sýkingum af völdum baktería og vírusa,“ útskýrir Björn.
Hann bætir við: „Ýmsir þættir geta dregið úr náttúrulegum vörnum líkamans og almennt.”
Í pistli sínum telur Björn svo upp ýmsa þætti sem geta veikt ónæmiskerfið, þar á meðal er sykurneysla, áfengisdrykkja og streita.