Kristín Þorsteinsdóttir, fyrrverandi ritstjóri Fréttablaðsins, fær ekki tökstuðning frá RÚV vegna ráðningar Stefáns Eiríkssonar, nýs útvarpsstjóra. Morgunblaðið greinir fyrst frá.
Kristín var einn af 41 umsækjendum um stöðu útvarpsstjóra og ein þeirra 19 umsækjenda sem fékk eitt viðtal.
Í beiðni sinni óskaði Kristín m.a. útskýringar á því hvers vegna hún komst ekki lengra í ráðningaferlinu.
Margrét Magnúsdóttir svaraði beiðni Kristínar um rökstuðning. Í svari Margrétar var þá vísað í álit frá umboðsmanni Alþingis frá árinu 2009 þar sem kemur fram að vegna stöðu sinnar sem opinbert hlutafélag starfi RÚV á sviði einkaréttar.
Kolbrún Halldórsdóttir, fyrrverandi umhverfisráðherra og leikhússtjóri, kallaði einnig eftir rökstuðning frá RÚV.
Starf útvarpstjóra var auglýst eftir að Magnús Geir Þórðarson sagði starfinu lausu, en hann var skipaður þjóðleikhússtjóri frá og með 1. janúar. Magnús Geir hafði gegnt stöðu útvarpsstjóra frá árinu 2014.
Sjá einnig: Stefán Eiríksson nýr útvarpsstjóri