Kona lenti í ógöngum í Hafnarfirði þegar hún reyndi að aka yfir gatnamót. Hún fipaðist og hafnaði á staur. Konan sagði lögreglunni að í Færeyjum, þar sem hún býr, væru ekki svona stór og mikil gatnamót og hún hefði þess vegna orðið ringluð og lent utan vegar. Blessunarlega sluppu ökumaður og farþegar vð meiðsli.
Í miðborginni slasaðist friðarins maður á hendi. Hann sagði lögreglunni að hann hefði fengið áverkana er hann reyndi að stöðva slagsmál milli tveggja manna sem hann þekkti ekki. Sagðist hafa náð að flýja á hlaupum frá árásaraðila.
Tveir menn voru handteknir í miðborginni fyrir brot á lögreglusamþykkt. Þeir voru drukknir og eru einnig grunaðir um smáþjófnað úr verslun. Mennirnir voru fluttir á lögreglustöð og læstir inni í fangaklefa. Þeir svara til saka þegar líður á morguninn.