Allra augu beinast nú að Fagradalsfjalli í nágrenni Grindavíkur, þaðan sem jarðskjálftarnir eiga upptök sín og eldgos gæti verið að bresta á. Nóttin var óróleg. Jarðskjálftavirkni þar jókst umtalsvert í gærkvöldi og stóð aukin virkni yfir frá um klukkan 18-23. Laust eftir miðnætti, eða um klukkan 00.22, hófst órói sem stóð yfir í um 20 mínútur. Skömmu síðar mældist skjálfti af stærð 3,8. Talsverð virkni var eftir þann skjálfta, meðal annars mældist skjálfti af stærð 3,0 kl 00.55. Klukkan 01.40 varð skjálfti af stærð 4,1 og nokkru seinna, klukkan 02.02 mældist skjálfti af stærð 5,0. Fólki í grenndinni varð því ekki svefnsamt. Upptökin eru um 9 kílómetra frá Grindavík og Vogum.
Fagradalsfjall á sér merkilega sögu. Atburður þar breytti heimssögunni. þann 3. maí 1943, fórst bandarísk sprengjuflugvél, B-24D Liberator, sem bar nafnið „Hot Stuff“ á Fagradalsfjallii. Flugvélin var á heimleið til Bandaríkjanna í fyrirhugaða sigurför sem fyrsta sprengjuflugvélin sem hafði náð ósködduð að fljúga 25 árásarferðir frá Bretlandi yfir meginland Evrópu í seinni heimsstyrjöldinni. Frá þessu segir á vefsíðunni keilir.net.
Margar slíkar flugvélar skotnar niður af orrustuflugmönnum Þjóðverja og hét Bandríkjaher áhöfnum sprengjuflugvéla sem lykju 25 árásarferðum að þeir fengju að snúa heim. Áhöfn „Hot Stuff“ var sú fyrsta til að ná þessum merka árangri og var á heimleið þegar ógnaratburðurinn varð.
Fjórtán manns, þeirra á meðal var Frank M. Andrews hershöfðingi og æðsti maður herafla Bandaríkjanna í Evrópu sem var á leið til Washington til þess að leggja á ráðin um undirbúning innrásar Bandamanna á meginland Evrópu. Einn maður lifði slysið af, George A. Eisel stélskytta.
Við fráfall Andrews tók Dwight D. Eisenhower hershöfðingi við sem æðsti maður herafla Bandaríkjanna í Evrópu og alls herafla bandamanna í Evrópu og stjórnaði innrásinni í Normandí árið eftir. Eisenhower varð forseti Bandaríkjanna á árunum 1953. Frækileg framganga hans sem arftaki Andrews tryggði honum að nokkru marki þær vinsældir sem hann þurfti til að sigra í kosningunum. Fluglysið á Fagradalsfjalli varð sá örlagavaldur að hafa áhrif á það hver settist í valdamesta embætti heimsins.