Fáir viðskiptavinir Strætó hafa notað þjónustuna í dag. Þetta sagði Jóhannes Rúnarsson framkvæmdastjóri Strætó BS á upplýsingafundi almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra í dag. Á fundinum fór hann yfir aðgerðir Strætó vegna útbreiðslu COVID-19.
Hann segir að þrif hafa verið aukin verulega undanfarna daga. Þá minnti hann á að frá og með deginum í dag verður framhurð strætisvagna á höfuðborgarsvæðinu lokuð og eru viðskiptavinir beðnir um að ganga inn í strætisvagna um mið- eða aftari dyr vagnsins.
Viðskiptavinir eru sömuleiðis hvattir til að greiða fargjald með strætókorti eða strætóappi.
Jóhannes sagði fáa viðskiptavini hafi notað Strætó í dag og þess vegna hafi ekki komið til þess að vagnstjóri hafi þurft að hætta að hleypa farþegum inn í vagninn til að tryggja að farþegar geti haldið að minnsta kosti tveggja metra fjarlægð frá hvor öðrum.
„Við erum með skerta afkastagetu,“ sagði Jóhannes. „ En við höfum ekki heyrt af neinum vandamálum í dag,“ sagði hann en benti á að dagurinn í dag er eitthvað öðruvísi.