- Auglýsing -
Karlmaður fannst látinn í sundhöll Reykjavíkur. Þetta kemur fram á vef Morgunblaðsins. Þar er greint frá því að maðurinn hafi fundist á botni laugarinnar á fimmtudag. Hann var síðar úrskurðaður látinn.
Margeir Sveinsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn, segir í samtali við mbl.is að maðurinn hafi átt við veikindi að stríða.
Ekki verður greint frá nafni og aldri hins látna að sinni.