Femínistar gera nú grín að afsökunarbeiðni Andra Júlíussonar knattspyrnumanns sem hraunaði yfir meðlimi íslenska kvennalandsliðsins og kallaði þá meðal annars litlar mýs. Hann baðst í gær afsökunar á orðum sínum með þeirri skýringu að hann elski konur og beri mikla virðingu fyrir þeim. Kvenfyrirlitning sé ekki til í hans orðabók og honum sárni að vera sakaður um slíkt.
Andri fékk óblíðar móttökur þegar hann kom bróður sínum, Jóni Þór Haukssyni, fyrrverandi landsliðsþjálfara kvenna í knattspyrnu, til varnar. Andri var sakaður um botnlausa karlrembu. Jón Þór Hauksson sagði á endanum upp starfi sínu sem landsliðsþjálfari kvenna eftir að hafa undir áhrifum áfengis hellt sér yfir landsliðsmenn.
Kristinn Sigurjónsson, áður lektor við Háskólann í Reykjavík, segir mál Jóns Þórs, fráfarandi þjálfara landsliðs kvenna í fótbolta, endanlega sanna að hann hafði rétt fyrir sér varðandi konur á vinnustöðum. Þær eyðileggi einfaldlega iðulega vinnustaði karla. Kristinn hefur áður sagst varla getað hugsað sér að starfa með konum og var í kjölfarið rekinn.
Femínistar ræða nú afsökunarbeiðni Andra á spjalli sínu á Facebook. Þar er því fleygt fram að það að elska konur og virða er ekki það sama og líta á þær sem jafningja. Ársæll Sigurlaugar Níelsson er einn þeirra sem gagnrýnir eftiráskýringar Andra. „Sárnaði honum? Voðalega er hann viðkvæm mús,“ segir Ársæll.
Hulda Hrund Sigmundsdóttir er ekki sátt. „Fátt kemur gubbinu hraðar upp í háls en ,,ég elska konur” setningin,“ segir Hulda. Inga Rós Vatnsdal er því sammála. Nákvæmlega það, hef svo oft heyrt verstu karlrembur henda í þessa setningu, það er alveg hægt að „elska og virða“ konur í orði en ekki á borði,“ segir Hulda.