Gjörningaklúbburinn frumsýnir Vatn og blóð, nýtt vídeóverk, á laugardaginn í Listasafni Íslands. Miðill kom að gerð verksins.
Vatn og blóð, nýjasta verk Gjörningaklúbbsins, sækir innblástur í líf og list Ásgríms Jónssonar listmálara. Hann lést árið 1958.
Við undirbúning verksins fengu þær Eirún Sigurðardóttir og Jóní Jónsdóttir, sem skipa Gjörningaklúbbinn, aðstoð frá miðli til að komast í samband við Ásgrím.
„Við undirbúning verksins var sjáandi fenginn til að komast í tengsl við Ásgrím sem tjáði sig um orkuna sem býr í listinni og sameiginlega þörf listamanna fyrir að skapa. Þetta er í annað sinn sem Gjörningaklúbburinn nýtur aðstoðar miðils við undirbúning á verki,“ segir Gjörningaklúbburinn um verkið.
Vatn og blóð verður sýnt klukkan 16:00 í Listasafni Íslands á laugardaginn, 2. nóvember.