Fimm einstaklingar eru í sóttkví og einn í einangrun vegna mögulegrar COVID-19-sýkingar á Ísafirði. Þetta kemur fram í Facebook-færslu Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða.
Í færslunni segir að einni einangrun var aflétt í dag þar sem sýni var neikvætt. Niðurstaðna frá einstaklingi í einangrun er að vænta seinna í dag.
„Ákvörðun um sóttkví og einangrun er tekin af umdæmislækni sóttvarna hjá Heilbrigðisstofnun Vestfjarða, með hliðsjón af leiðbeiningum frá sóttvarnalækni. Þetta eru fyrstu ráðstafanirnar sem gerðar eru í umdæminu,“ segir í færslunni.
Sóttkví er varúðarráðstöfun fyrir einkennalausa einstaklinga sem hafa verið á ferðalögum á skilgreindum áhættusvæðum. Gripið er til einangrunar sem varúðarráðstöfunar ef einhver einkenni eru fyrir hendi sem mögulega geta verið Covid-19.
Sjá einnig: Mælir gegn ferðalögum til Suður-Kóreu, Írans, Kína og fjögurra héraða á Norður-Ítalíu