Spennuþættirnir Brot (The Valhalla Murders) hefja göngu sína þann 26. desember á RÚV. Þættirnir verða átta talsins og fjalla um raðmorðingja sem gengur laus í Reykjavík.
Með helstu hlutverk fara Nína Dögg Filippusdóttir og Björn Thors.
Handrit þáttanna er skrifað af Óttari Norðfjörð, Margréti Örnólfsdóttur, Mikael Torfasyni og Otto Geir Borg og leikstjórar eru Þórður Pálsson, Davíð Óskar Ólafsson og Þóra Hilmarsdóttir.
Kvikmyndamiðstöð Íslands, RÚV og efnisveitan Netflix koma að fjármögnun. Greint hefur verið frá því að heildarkostnaður við gerð þáttaraðarinnar sé um 700 milljónir króna og að um helmingur fjármögnunar komi frá Netflix. Þættirnir verða aðgengilegir á Netflix á næsta ári.
Meðflygjandi er stikla úr þáttunum.