Svikahrappur mætti á veitingastað í Múlunum og át sig saddan af lystisemdum staðarins. Þegar máltíðnni lauk lét gesturinn sig hverfa og hljópst á brott frá ógreiddum reikningi. Lögreglu var tilkynnt um fjársvikin. Maðurinnn er enn ófundinn.
Í miðborginni bar það til tíðinda að ökufantur varð valdur að árekstri og lét sig hverfa í snarhasti. Lögreglan sýndi snarræði og náði að stöðva ökumanninn sem reyndist ekki vera með sjálfum sér. Hann er grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna og var læstur inni í fangaklefa þar sem hann dúsir fram eftir morgni.
Ökumaður var stöðvaður fyrir að aka á móti rauðu umferðarljósi. Mál hans var afgreitt með sekt. Hann þarf að greiða 50 þúsund krónur.
Búðarþjófur var gripinn í Hafnarfirði. Mál hans var afgreitt á vettvangi. Á sömu slóðum var ökumaður stöðvaður fyrir hraðakstur í íbúðahverfi. Hann var á 89 kílómetra hraða og þarf að greið avæna fólgu í sekt. Þá stöðvaði Hafnarfjarðarlögregla ökumann fyrir að tala í sína án þess að nota handfrjálsan búnað. Sá málglaði þarf að greiða 40 þúsund krónur.
Búðarþjófur var gómaður í Breiðholti. Mál hans var afgreitt á vettvangi.
Ofbeldismaður gar handtekinn fyrir líkamsárás í Garðabæ. Hann var læstur inni í fangageymslu.
Útlendingur var staðinn að ósæmilegri hegðun á almannafæri í miðborginni í gær. Hann var handtekinn og vistaður í fangageymslu.