Fjórar umsóknir bárust um stöðu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu sem auglýst var laus til umsóknar, en umsóknarfrestur rann út 30. mars.
Sigríður Björk Guðjónsdóttir, fyrrverandi lögreglustjóri, var skipuð ríkislögreglustjóri frá 16. mars.
Eftirtaldir sóttu um stöðuna:
Halla Bergþóra Björnsdóttir, lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra
Helgi Valberg Jensson, aðallögfræðingur lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu
Hulda Elsa Björgvinsdóttir, settur lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu
Jón H. B. Snorrason, saksóknari við embætti ríkissaksóknara.